22/09/2023
Elsku viðskiptavinir okkar❤️
Því miður er komið að lokum hjá okkur í Evey verslun.
Við erum þrjár sem stöndum á bakvið Evey, Arndís, Bjargey og Eva.
Miðvikudaginn 13.sept er Bjargey okkar lögð inná spítala þar sem hún greinist með alvarlega hjartabilun, eitthvað sem enginn sá fyrir að myndi koma fyrir 26 ára gamla, hrausta manneskju. En þetta setur allt á pásu og krefst þess að við endurhugsum aðeins.
Við vitum að við þurfum rólegra líf og við höfum lært það að það að reka taubleyjuverslun á Íslandi er ekki einfalt verkefni, og sérstaklega ekki á síðustu vikum.
Það er ekki auðvelt að sitja undir ósönnum ásökunum og það að upplifa að einhvern langi að skemma fyrir manni það sem við höfum unnið virkilega hart að er vægast sagt erfitt. Þetta skapar allt saman álag sem er ekki hægt að bjóða litlu fjölskyldunni okkar uppá.
Okkur þykir þetta ofboðslega leitt og þetta var alls ekki á dagskrá hjá Evey.
Okkur langar til þess að þakka ykkur öllum fyrir viðskiptin og fyrir að styðja við litla fyrirtækið okkar, þið trúið ekki hversu mikils virði það er❤️
Við höldum versluninni gangandi þangað til vörurnar klárast og svo kemur í ljós hvað verður um vörumerkin okkar.