14/03/2021
Góðan sunnudaginn!
Ég var í svo ægilega miklu vorskapi síðasta sunnudag og svo kom bara smá vetur aftur. Haugur af snjór aftur fyrir utan húsið mitt, stór hluti gluggana þaktur af snjó og mjög hvasst og huggulegt. En ég læt það ekkert á mig fá, það á að verða áfram vor á mánudaginn svo ég læt þetta ekkert slá mig út af laginu og held áfram að vera í vorfíling ☘️
Og því fannst mér tilvalið að tala um nokkra ilmi sem mér finnast passa vel þegar það er vor í loftinu. Ég ákvað að velja helst eitthvað sem hægt er að nálgast í snyrtideildinni í Hagkaup þó ég eigi marga aðra sem ég hef keypt að utan eða þegar ég hef ferðast sem eru líka æði núna, en það er erfitt að mæla með einhverju sem fólk getur ekki þefað af áður en það kaupir.
Ef þið þekkið ekki nóturnar eins og þær lykta þegar þær eru stakar, þá er auðvitað alltaf erfitt að lýsa ilmum á "réttan" hátt. Ég er orðin ansi sjóuð eftir mörg, mörg ár af því að nota ilmvötn og svo síðustu árin þá fór ég að sanka að mér olíum til að læra að þekkja hverja nótu fyrir sig og því get ég oft lesið mér til um innhaldsnótur í ilmum og giskað nokkuð vel á hvernig viðkomandi ilmur er að fara að lykta. Ég hef meira að segja dundað mér við að setja saman mína eigin ilmi (nei, þeir eru ekki góðir hjá mér ennþá, ef einhver ætlaði að spyrja 😆) og draumurinn er að verða nógu góð til að búa til mína eigin línu. En það er á langtímaplaninu.
Þrátt fyrir að vera með nokkuð vel æft nef þá er það samt aldrei öruggt þegar ég les um innihaldsefnin. Oft þá geta tveir ilmir verið með nánast alveg sama nótupýramída en svo eru þeir ekkert líkir. Og þar sem ekki allir hafa þennan gríðarlega áhuga á vísindalegu hliðinni á ilmvatnsgerð, þá ætla ég að reyna að lýsa þeim á eins óvísindalegan hátt og hægt er svo þið getið fengið þokkalega hugmynd um hvað er að gerast í hverjum ilm.
Og án þess að eyða meiri tíma í blaður, þá eru þau hér, topp s*x imvötnin fyrir vorið!
Valentina - Valentino
Þessi er voðalega ljúf. Nefið á mér pikkar aðallega upp jasmín og tuberose, sem virkar pínu á mig eins og sæt tyggjó - hljómar kannski spes en í mörgum ilmum með jasmín og tuberose þá finn ég sæta tyggjólykt. Við erum samt ekkert að tala um sykursæta barbiedúllu lykt, langt því frá. Það er truffla og bergamot þarna líka, jarðarber og african orange flower, sem gefur ilminum svona smá ávaxtakikk án þess þó að þetta sé ávaxtailmur. Svo þegar hún "jafnar" sig, þ.e. ilmurinn hefur gefið frá sér toppnóturnar sem koma fram yfirleitt á fyrstu 10 mínútunum, þá finn ég líka smá vanillu og svo viðarlykt, cedar eða sýprus er viðurinn í grunninn og kemur í veg fyrir að hún verði ekkert nema fluff og léttheit. Venjulga þá er eitthvað slíkt notað í grunninn og það er grunnurinn ásamt miðjunótunum sem þú finnur yfirleitt lengst fyrir. Í heildina þá er þessi lykt sæt og ljúf (ekki sykursæt eða ávaxtasæt) og ég sé alltaf fyrir mér að vera í hvítri mjúkri peysu, eða mjúkri peysu í pastellit þegar ég spreyja þessum ilm á mig. Ég þarf kannski að kaupa mér pastellita peysu svo ég geti notað Valentinu almennilega 🤔😁. Endingin er góð, í það minnsta á mér, ég finn enn fyrir henni 6+ tímum eftir að ég set hana á mig. Þetta er ekki ilmur sem æpir neitt, fólk þarf að koma nálægt þér til að finna hana. En það passar líka vel við hana, ljúf og kósý, svífur um með þér á pastelbleiku skýi og er ekki ágeng og hávær. Fullkomin fyrir lengri vorkvöld.
Katy Perri's Indi - Katy Perry
Ég verð að viðurkenna að ég hef aldrei nokkurntíma tekið upp ilm frá Katy Perry fyrr en þegar ég prófaði Indi núna um daginn. Hún stóð eitthvað svo einmanna í neðstu hillunni í einum rekkanum í Hagkaup og ég hef sennilega aldrei horft á hana fyrr en þennan dag þegar ég var að leita að einhverju nýju að prófa. Ég greip flöskuna án þess að hugsa mikið út í það og spreyjaði á mig og samstundis þá var ég bara vá. Þetta er musk ilmur út í eitt og það eru að ég held 5 mismunandi musk tegundir í grunninum. Þegar það blandast saman við toppnóturnar, sem eru plóma, bergamot og hvítt te, þá les nefið á mér heildina eins og sandalvið og orange blossom. Ég veit ekki hvernig, en það er það sem gerist hjá mér. Toppnóturnar eru bergamot, hvítt te og plóma og svo liljur, cyclamen (Maríulykill) og sýprus. Nefið á mér les þessa heild sem mjúka (já það eru margir vorilmir sem ég myndi lýsa sem mjúkum, bara svona til að vara ykkur við), með smá ávöxtum sem minna á orange blossom, þrátt fyrir að ekkert slíkt sé til staðar. Musk getur verið allskonar og alvöru musk er ekki lengur notað í ilmvatsgerð (eða mjög sjaldan og kostar þá líka gríðarlega mikið) sökum ömurlegrar meðferðar á muskdýrunum - karldýrin eru veidd og lítill poki neðarlega á maganum skorinn af og muskefnið tekið út með skeið, og dýrið deyr oftast eftir þetta. Vísindamenn og konur sem sérhæfa sig í ilmefnum eru búin að þróa margar tegundir af gerfi musk síðustu áratugina til að komast til móts við þetta mikilvæga og vinsæla efni í ilmum og margir hverjir eru mjög góðir. Musk getur lyktað allt frá því eins og þvottaefni eða sápa, eða haft keim af slíku og alveg yfir í það sem er flokkað sem "animalic" í ilmum. Animalic er td. ilmir sem lykta eins og heit húð í sól, stundum eins og smá sviti og svo alveg út í það að lykta eins og kynfæri 😮. Nó djók. Þegar þú lyktar af efninu hreinu og óþynntu þá færðu óhefta lykt af slíku en eins ósmekklega og það hljómar, þá getur það haft dásamleg áhrifa á heildarútkomuna ef það er þynnt mikið. Þegar ég segi þynnt mikið þá er ég að tala um að stundum þarf bara 0,01 ml. af slíkum efnum í 100 ml. af tilbúnum ilmi og útkoman er yndisleg. En hvað um það, ég er smávegis komin út fyrir efnið 😄. Indi lyktar á mér eins og heit húð með smá orange blossom keim. Kannski minnir mig örlítið á sólarvarnarlykt. Heit og hrein húð, með smá sólarvörn og orange blossom. Mér þykir hún alveg dásamleg, þægileg og passar þegar veðrið verður aðeins hlýrra. Ég gæti trúað að hún væri líka mjög góð í sumar. En hún er mjög lágstemmd, og ég held ekki að neinn finni lyktina af mér nema viðkomandi standi nokkuð nálægt. En ég sjálf finn hana reglulega yfir daginn og mér er sama þó ég ein fái bara að njóta hennar. Hún er mögulega að verða ein af mínum uppáhalds.
Samsara - Guerlain
Samsara er einn af þungavigtailmunum frá Guerlain. Hún kom út árið 1989 og hefur verið einn best seldi Guerlain ilmurinn síðan þá. Og hún er ekki allra skal ég segja ykkur. Enda þá er ég eiginlega steinhissa á því að mér líki hún því þetta er alls ekki minn stíll. Ég var búin að lesa svo mikið um þetta fræga ilmvatn og á endanum þá pantaði ég hana að utan án þess að hafa þefað af henni áður, enda liggur það við guðlasti í ilmvatnsheimum að vita ekki hvernig Samsara lyktar. Og ég er stanslaust að auka þekkinguna hjá mér svo ég lét vaða. Ég verð að segja að ég var mjög hissa þegar ég fékk hana í hendurnar og þefaði af flöskustútnum. Fyrsta lyktin sem ég greindi var ylang ylang og minnti mig samstundis á ilmvatn sem ég hafði sjálf búið til. Nei því miður, þá eru ilmvatnsgerðarhæfileikar mínir ekki á pari við nef sem vinna fyrir Guerlain og það var bara rétt fyrstu 10 sekúndurnar sem mér fannst það minna á eitthvað heimatilbúið frá mér. Og það var bara vegna þess að nefið á mér fann bara fyrir ylang ylang til að byrja með, mitt ilmvatn var einmitt líka með hátt hlutfall af því sama í sér. En um leið og það róaðist og ég g*t fundið meira þá fann ég sterka lykt af sandalvið og musk og þessi blanda gerir það að verkum að ég finn mikla sápulykt. Og sápulykt er að öllu jöfnu eitthvað sem ég þoli alls ekki í ilmum. Ég varð fyrir vonbrigðum, þetta gríðar fræga og vinsæla ilmvatn lyktaði svo bara mest eins og gul sápa? Ég lét það bara í skúffuna og gleymdi því í smá tíma. En þar sem ég prófa alltaf allt nokkrum sinnum (nefið þarf að læra að meta nýtt og það gerist bara með því að prófa hluti sem ég er ekki endilega hrifin af í byrjun), þá skellti ég henni á mig einn daginn áður en ég fór út að labba og jú, ég fann sápulyktina en það var samt eitthvað við hana sem varð til þess að ég notaði hana aftur og aftur. Ég var ekki hrifin af henni að mér fannst en ég var samt alltaf spennt fyrir henni. Ég veit ekki af hverju. Ég hafði líka lesið að hún nyti sín best yfir veturinn því þá kæmu allar nóturnar fram og þar sem ég fékk hana um mitt sumar þá hafði ég sennilega ekki upplifað hana eins og "á" að gera. Ég geymdi hana þar til að það varð mjög kalt, skellti henni á mig einn daginn áður en ég dreif mig út að erindast og spáði ekki sérstaklega mikið í því. En einhverju seinna þá fann ég þessa ótrúlega góðu lykt einhversstaðar, sem ég kannaðist ekki við. Ég þefaði út um allt og það tók mig smá stund að kveikja á því að lyktin kom frá mér. Og það var hárrétt sem sagt var, að hún væri best þegar kalt væri í lofti. Allt í einu þá minnkaði sápulyktin um helming og sæt og krydduð lykt tók við. Ylang ylang getur verið mjög sætt og kryddað og mig grunar að það hafi loksins fengið að njóta sín í kuldanum. Samsara gæti virkað á marga eins og "gömul" lykt enda er lítið sameiginlegt með henni og sykurbombunum sem eru vinsælar núna. En það er eitthvað við hana sem fær mig til að nota hana reglulega þó hún sé ekki endilega lík því sem ég venjulega nota. Og hún er virkilega góð núna, íslenskt vor er vissulega nánast eins og vetur á mörgum stöðum í heiminum svo 6 gráðurnar sem eru hlýjar þegar vorar hér, eru heppilegar fyrir Samsara. Hún er líka mjög góð þegar það er hörkufrost en mér þykir hún eiga vel við núna því það er eitthvað sólskin í henni. Og þetta er bomba. Tvö sprey og ekki meira, nema þú vijir að allir finni lyktina af þér löngu áur en þú mætir á svæðið. Og hún endist og endist. Það var ekkert verið að djóka með hana þessa þegar hún var gerð. Krydduð sápa með smá sól. Það er besta lýsingin á henni held ég bara. Og það passar bara fínt við vorið. ATh. - Guerlain fæst bara í einhverjum Hagkaupsverslunum í Reykjavík, mögulega bara Hagkaup í Kringlunni og Smáralind (því miður).
N**e - Rihanna
N**e er réttnefni á þessa. Hún virkar pínu nakin. Smá húðlykt í gangi með fullt af ávöxtum. Guava, pera, mandarína, gardenía, jasmín, orange blossom, vanilla orchid og musk. Hún er pínu s*xý þessi, sæt og hlý án þess þó að vera ávaxtakokteill eða sykursjokksæt. Fullkomin fyrir vorið og sumrið ef þú vilt lykta sætt og girnilega. Þó það séu engar aprikósur í nótunum þá finnst mér hún alltaf minna mig á þroskaðar aprikósur með rjóma. Hún hefur ekki verið til í Hagkaup hérna á Akureyri í eitt ár eða tvö, svo kannski er hún ekki í boði lengur hér á landi. En hún fæst enn erlendis og á síðum eins og Fragrancex.com ef fólk er til í að eyða í hana án þess að prófa. Hún er ekki dýr svo það er væri þá ekki svakalegur skellur ef hún hentar ekki. Það er eiginlega lítið um hana að segja annað en að ég nota hana sérstaklega á vorin, rjómi og aprikósur og huggulegheit, hækkandi sól og bara gaman.
Pure White Linen - Estée Lauder
Ég veit ég sagði að sápuilmir eru ekki beint fyrir mig, en ég ætla samt að láta þennan fljóta með því hann bara passar svo vel þegar grænka fer í haga og kindur fara á beit 🐑🍃. Lyktin af Pure white linen er bara nákvæmlega það sem nafnið segir - lykt af nýþvegnum þvott sem hangir á snúru í vorgolunni. Einu skiptin sem ég nota hana eru á vorin og þá aðallega vegna þess að myndin sem ég fæ upp í hugann þegar ég er með hana er þessi fallega þvottur-úti-á-snúru-sól-og-veðrið-farið-að-hlýna. Hún er alveg dásamleg ef þú vilt kalla þessa mynd fram i hugann. Hún samanstendur af meðal annars jasmín, gardeníu og tuberose, grænum nótum, peru, patchouli og sýprus ásamt fjölmörgu öðru. En heildarútkoman er þvottaefni, sápa, með smá grasfíling líka. Ég sé alltaf fyrir mér konu sem gengur um í hörskyrtu og buxum í beige lit, sandölum og á hús í suður Frakklandi þegar ég spái í því hvernig týpa notar hana. Ég er klárlega ekki þessi týpa en ég dáist að henni fyrir hvað hún er klassísk og falleg. Fyrir þær sem vilja hreinan og klassískan ilm.
For Her - Narciso Rodriguez
Ég veit eiginlega ekki hvernig ég á að lýsa þessari - þetta er musk lykt með meiru. Pacthouli, vetiver, bergamot, african orange flower ásamt fleirum nótum en það er ekki auðvelt að lýsa henni. Hún hallar út í sápu/hreina musk lykt en er samt alls ekki sápulykt. Hún er pínu svona lykt sem lagar sig að þér, "your skin but better" fílingur finnst mér. Ef einhver man eftir ilminum Lovely frá Söruh Jessicu Parker sem kom út að mig minnir í kringum 2005, þá var sá ilmur eftirherma af þessum og ætti að gefa ykkur einhverja mynd af því hvernig þessi er ef þið þekktuð þá lykt. Ég man ekki í fljótu bragði eftir neinu sem er til hér á landi sem líkist þessum ilm mikið. Ég átti Lovely þegar hún kom út og alveg elskaði hana, og hafði ekki hugmynd um að hún væri gerð "í anda" (lesist, hermt eftir) For Her frá NR. Mörgum árum seinna fór ég að leita að Lovely aftur og þar sem hún er löngu hætt að vera seld hér á landi þá ætlaði ég að kaupa hana að utan. En ég komst þá að því að þetta var upprunlalega lyktin svo ég ákvað að prófa hana í staðinn. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum enda vissi ég hvernig Lovely lyktaði. En ég man að það voru ekki margar vinkonur mínar sem fíluðu hana á sínum tíma og skildu ekkert í því hvers vegna ég elskaði hana svona mikið, og það sama á við um For Her. Ef ég leyfi fólki að þefa af flöskunni þá eru fáir eitthvað spenntir. En málið er að hún verður svo falleg þegar hún er komin á. Þetta er eitt af þeim ilmvötnum sem ég fæ sem mesta hrósið út af. Fólk greinilega kann að meta hana þegar það finnur hana á mér eða í loftinu í kringum mig, en ekki ef það þefar beint af flöskunni. En það skiptir mig svo sem ekki miklu máli því ég elska hana og myndi nota hana þótt enginn fílaði hana nema ég. Hún er létt og ég nota hana þá daga sem ég vil eitthvað þægilegt og ljúft. Musk er samt þannig efni að þú upplifir oft "þefblindu" með það. Já ég veit að þefblinda er ekki orð en ég ætla samt að nota það. Og þar sem ekki allir geta fundið eins mikla lykt af sumum musk þá eru margir sem finna ekki lyktina af þessu eins og ég geri. Ég veit ekki hversu margar umfjallanir ég hef lesið um For Her þar sem fólk segist ekki finna neina lykt. Og þess vegna myndi ég ekki endilega mæla með að kaupa hana án þess að prófa hana. En ef þú rekst á hana einhversstaðar þá mæli ég með að gefa henni séns. Dásamleg vorlykt, létt, hrein og öðruvísi.
Og þá eru nokkrir af mínum uppáhalds vorilmum upptaldir. Ég spreyjaði hverjum ilm fyrir sig á post-it miða til að hafa þá beint við nefið á meðan ég skrifaði um þá svo herbergið ilmar núna nokkuð öflugt. Ég þarf sennilega að lofta út áður en ég held áfram að vinna 😆. Ef þú ert að leita að einhverju nýju og fersku í safnið og langar í eitthvað sem minnir á bjartari kvöld og hlýrra veður, þá mæli ég með að kíkja á þessa 💋.
Linda.