Þjóðbúningalöggan - Þjóðbúningurinn minn - Blómstranna móðir

Þjóðbúningalöggan - Þjóðbúningurinn minn - Blómstranna móðir "Blómstranna mæður" er félagsskapur kvenna og karla sem hafa áhuga á að gera veg og vanda íslenskra búninga og handverks sem mestan.

Nafnið "Blómstranna mæður" er komið úr minningarorðum um Guðrúnu Skúladóttur, dóttur Skúla fógeta. Hún var annáluð hannyrðakona og því þykir við hæfi að minnast hennar og annarra forfeðra okkar sem lögðu sig fram um að skapa þann menningararf sem felst í íslensku handverki ekki síst íslenskum búningum.

🌞
24/04/2026

🌞

Flott verk í Þingborg, unnið af 39 konum.
07/10/2022

Flott verk í Þingborg, unnið af 39 konum.

NýttSmáblómið Dyggð - lausavasiFæst í rauðu, bláu, grænu og svörtu Verð 6.500
11/12/2021

Nýtt
Smáblómið Dyggð - lausavasi
Fæst í rauðu, bláu, grænu og svörtu
Verð 6.500

Jólaopnun 🎄
20/12/2019

Jólaopnun 🎄

Annríki - Jólaopnun laugardag 21. og mánudag 23. desember kl. 14.00-18.00. Fjölbreytt búningaskart. Efni og tillegg í búninga. GJAFABRÉF. 🎅🏻🤶🏻🎄

Þjóðbúningar koma víða við sögu og ræturnar liggja djúpt
19/04/2019

Þjóðbúningar koma víða við sögu og ræturnar liggja djúpt

„Ég verð aldrei of gömul til að reyna eitthvað nýtt,“ sagði Ieda við Ölmu og Viktoríu. Hvernig fannst ykkur heimildarmyndin og lífsspeki Iedu?

ALDREI OF SEINT

Fallegt
29/03/2019

Fallegt

Glæsilegur skautbúningur sem sýnir svo vel hvernig konur blönduðu saman nýju og gömlu í búningatískunni. Pilsið er eftir gömlu tískunni með leggingum en treyjan er eftir nýja sniðinu eins og það leit út um 1860. Sniðið átti síðar eftir að þróast þannig að hálsmál varð dýpra og púff kom í ermar. Það er vel hugsanlegt að baldýringin sé samsett af faldtreyjuborðum og -kraga miðað við mynstrið. Beltisparið er frá faldbúningi og svuntuhnappurinn orðin hluti af því. Höfuðbúnaðurinn er hins vegar eftir nýjustu tísku, skautfaldur með spöng.
Myndin er líklega af Kristjönu Agnesi Hansdóttur Hoffmann, 1845-1905

Þjóðbúningadagur 🤩
15/03/2019

Þjóðbúningadagur 🤩

Gleðilegt nýtt ár :)
31/12/2018

Gleðilegt nýtt ár :)

Gleðilegt nýtt ár - Godt nyt år - Happy New Year - 2019 🤩

Viðburðarík helgi að baki :)
03/12/2018

Viðburðarík helgi að baki :)

Þjóðbúningamessa var haldin fyrsta sunnudag í aðventu í Hafnarfjarðarkirkju. Að venju tóku nemendur og vinir okkar í Annríki þátt í athöfninni og sáu um ritninga- og bænalestur. Að lokinni messu var haldin útskrift nemenda af þjóðbúninganámskeiðum þetta haustið í Annríki. Prestur var séra Jón Helgi Þórarinsson og kaffiveitingar voru í boði Hafnarfjarðarkirkju sem Ottó R. Jónsson sá um. Fjöldi gesta mætti bæði í messu og útskrift. Bestu þakkir til allra sem mættuð og gerðuð daginn svo ánægjulegan :)
Bestu þakkir til allra sem komu að skipulagi helgarinnar sérstaklega; Hafnarfjarðarkirkja, séra Jón Helgi Þórarinsson, Ottó R. Jónsson, staðarhaldari og Magnús Gunnarsson, formaður sóknarnefndar. Vinkona okkar Steinunn Guðnadóttir og Halldór Árni Sveinsson. Elsku besta Erla Rúrí Sigurjónsdóttir sem alltaf er svo dugleg að fylgja okkur. Bestu þakkir til Binna ljósmyndara og Margret Skuladottir fyrir alla hjálpina :)
Photo Binni

Gott að vita :)
16/09/2018

Gott að vita :)

Kæru vinir Annríkis
Þessu er velkomið að deila :)

Vegna mjög mikilla anna í Annríki þetta haustið getum við því miður ekki haft opið alla fimmtu- og föstudaga fram til jóla. Þar sem Hildur er nú í MA-námi í sagnfræði og námskeiðahalds verðum við að breyta planinu aðeins. Við munum reyna að hafa opið einn dag í viku og munum setja inn tilkynningar hér á síðuna í hverri viku. Við vonum að þið kæru vinir sýnið þessu skilning og ef þið þurfið að ná í okkur þá er alltaf hægt að senda póst á [email protected] eða senda okkur skilaboð.

Bestur kveðjur
Hildur og Ási

Address

Hafnarfjörður
220

Opening Hours

Monday 11:00 - 18:00
Tuesday 11:00 - 18:00
Wednesday 11:00 - 18:00
Thursday 11:00 - 18:00
Friday 11:00 - 18:00
Saturday 11:00 - 15:00
Sunday 13:00 - 17:00

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Þjóðbúningalöggan - Þjóðbúningurinn minn - Blómstranna móðir posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Þjóðbúningalöggan - Þjóðbúningurinn minn - Blómstranna móðir:

Shortcuts

Share