gunnhann

gunnhann A knitter who loves Icelandic woollen yarn "Lopi". I also work with second-hand textiles. Slow fashion is the keyword in my studio.

At gunnhann™ studio you are offered a unique art,craft and design experience. [email protected]
www.gunnhann.is Ég er textílkennari og hef kennt textílmennt í grunnskólum síðan ég útskrifaðist úr KHÍ 1989. Einnig hef ég kennt á námskeiðum.

Það má segja að líf mitt snúist um handavinnu. Hún er stór þáttur af mínu starfi auk þess sem ég sæki sjálf námskeið í faginu, les fagbækur, sæki mér fróðle

ik og prófa nýja hluti.

Þar sem ég þarf alltaf að vera að, fæ stanslaust hugmyndir að nýjum verkefnum, ákvað ég að selja eitthvað af því sem ég geri og leyfa öðrum að njóta þess sem verður til hjá mér.

Ég hef alltaf haft áhuga á að endurnýta hluti. Það er gaman að sjá t.d. gömul föt eða gardínur fá nýtt hlutverk. Engu er hent fyrr en ég er viss um að ekki sé hægt að vinna eitthvað fallegt upp úr því

Einnig er ég mjög hrifin af íslensku ullinni. Ég tel hana vera besta varmagjafa se, hugsast getur. Að geta, á köldum degi,umvafið sig fallegri hönnun og fengið yl og hlýju. Ég vinn mikið með einfaldan plötulopa. Peysa prjónuð úr honum er svo létt að varla fyrir má finna fyrir henni utan á sér.

Í hönnun minni fer ég oft nýjar leiðir. Ég hef verið að lita lopann sem mér finnst mjög spennandi og verða alveg nýjir litir til með því. Einnig skreyti ég peysurnar á mismunandi hátt, bæði með þæfðu mynstri og/eða útsaum. [email protected]
www.gunnhann.com

Viltu koma með mér á sýninguna The Stitch Festival ? Í samstarfi við ferðaskrifstofuna Trans Atlantic mun ég verða farar...
16/12/2025

Viltu koma með mér á sýninguna The Stitch Festival ? Í samstarfi við ferðaskrifstofuna Trans Atlantic mun ég verða fararstjóri til London á þessa frábæru sýningu 19.-22. mars 2026.

Á sýningunni The Stitch Festival koma saman um 150 söluaðilar sem sýna og selja margs konar efnivið til að nota í útsaum, fatasaum, prjóni og öðru handverki. Ættu því allir að finna eitthvað við sitt hæfi því úrvalið er mikið. Á þessari skemmtilegu sýningu muntu fá ógrynni af nýjum hugmyndum, getur hlustað á fyrirlestra og fylgst með sýnikennslu á margs konar handverki.
https://www.thestitchfestival.co.uk/ hér getur þú séð m.a. myndir frá sýningunni í fyrra.

Ég mun leiða hópinn á sýninguna og einnig mun ég koma með hugmyndir að búðum/ götum sem gaman væri að heimsækja á frjálsum dögum - ef þú hefur ekki fengið nóg á sýningunni 🙂

Hægt er að fara á stutt námskeið (1-2 klst) í margs konar handverki, sjá auglýsingu / framboð hér :
https://thestitchfestival.seetickets.com/workshops/the-stitch-festival-workshops

Ferðin kostar 199.300 kr miðað við 2ja manna herbergi.
Innifalið í því verði :
Gist verður á hótelinu Hilton London Angel Islington (4 stjörnu). Það getur ekki verið betur staðsett. Alveg við hliðin á sýningarhöllinni þannig að ekki er langt að fara og við getum meira að segja skotist upp á herbergi og hvílt okkur eða losað okkur við varning sem við kaupum.
Flogið er með Icelandair - morgunflug á fimmtudegi og kvöldflug á sunnudegi. 1 taska innifalin.
Miði á sýninguna fyrir 2 daga.
Rúta til og frá Heathrow.
Fararstjórn

Staðfestingargjald er 45.000 kr.

Ef þú hefur áhuga og/eða vilt skrá þig í ferðina þá er bara að senda mér línu. [email protected]

Lagersala !Undanfarin ár hef ég fundið heilun við að prjóna sjöl. Nú áttaði ég mig á því að þau eru orðin ansi mörg og á...
23/11/2025

Lagersala !
Undanfarin ár hef ég fundið heilun við að prjóna sjöl. Nú áttaði ég mig á því að þau eru orðin ansi mörg og ákvað því að skella í lagersölu í von um að e-ir sjái þarna sjal sem gæti yljað þeim og kaupi það á spottprís - 8-12.000kr stk

Address

Álfhólsvegur 79d
Kópavogur
200

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when gunnhann posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to gunnhann:

Share