Pollyanna.is

Pollyanna.is Verslun með fimleika og ballett vörur og allt fyrir skauta, bæði listskauta og hokkí.
Ásamt skemmtilegri gjafavöru og góðu úrval af Disney vörum.

Pollyanna.is - vefverslun með ballet, fimleika, skautavörur listskauta og hjólaskauta, barnafatnað, ásamt úrvali af gjafavöru.

10/05/2026
09/05/2026

Uppgötvaðu HUDORA Basic línuskautana! 🛼
Hannaðir fyrir bæði byrjendur og þá sem eru vanari!

Skautarnir eru með stillanlegri stærð, sem tryggir að þeir passi fullkomlega þótt fæturnir stækki. Sterkbyggð hönnunin veitir frábæran stuðning og stöðugleika, sem eykur öryggi og gerir skautaupplifunina enn betri.

Áreynslulaust rennsli: Með mjúkum og góðum hjólum sem snúast vel, þú svífur áfram á ýmiss konar undirlagi.

Þægindi í fyrirrúmi: Skórnir eru úr efni sem andar, svo það fer vel um fæturna jafnvel í löngum ferðum.

Hvort sem markmiðið er líkamsrækt eða hrein skemmtun, þá eru HUDORA línuskautarnir frábær kostur fyrir alla sem vilja njóta þess að vera á ferðinni!
https://pollyanna.is/collections/hjolaskautar/products/linuskautar-basic-blair-staekkanlegir-1



Gleðilega páska,Við ætlum að njóta páska frídaganna og hafa lokað hjá okkur yfir páskanna, að undanskildum LAUGARDEGINUM...
02/04/2026

Gleðilega páska,
Við ætlum að njóta páska frídaganna og hafa lokað hjá okkur yfir páskanna, að undanskildum LAUGARDEGINUM þá er opið á milli 11-15 hjá okkur á Smiðjuvegi 74.

Eigið góða páskahelgi

⛸️ Fyrir alla listskautara og foreldra! ⛸️Við elskum afís-æfingar! Þær byggja upp styrk og tækni fyrir stökkin á ísnum. ...
22/03/2026

⛸️ Fyrir alla listskautara og foreldra! ⛸️

Við elskum afís-æfingar! Þær byggja upp styrk og tækni fyrir stökkin á ísnum. En höfum við pælt í hvað gerist þegar við lendum erfiðum stökkum aftur og aftur á hörðu gólfi? (Skrollaðu í gegnum myndirnar til að læra meira! 👉)

Margar stelpur glíma við verki í hælum, sköflungum eða hnjám. Oft er því kennt um vaxtarverki eða ranga tækni, en sannleikurinn er sá að venjulegir íþróttaskór eru sjaldnast hannaðir fyrir það gríðarlega höggálag sem fylgir listskautastökkum.

En það er til lausn! 🛡️

Í Pollyönnu eigum við tæknina sem dregur úr þessu álagi. Edea E-Sole og Noene innleggin eru byltingarkennd. Þau eru þunn, passfótinn vel og dreifa allt að 98% af höggorkunni áður en hún berst upp í liðamótin.

Með því að nota þessi innlegg í afís-skóna þína ertu að:
✅ Minnka líkur á álagsmeiðslum.
✅ Auka jafnvægi og stöðugleika í lendingum.
✅ Halda sömu góðu tilfinningunni og er í skautunum þínum.

Ekki láta liðamótaverki stoppa framfarirnar þínar. Komdu við hjá okkur í Pollyönnu í Skautahöllinni, við eigum réttu innleggin fyrir þig og þína skauta og strigaskó! 💖

VIÐ GEFUM MIÐA Á ÚRSLITALEIKINA Í HOKKÍ Á HEIMAVELLI SR! 🏒🔥Viltu sjá hörkuspennandi íshokkí í beinu útsendingu? Við ætlu...
11/03/2026

VIÐ GEFUM MIÐA Á ÚRSLITALEIKINA Í HOKKÍ Á HEIMAVELLI SR! 🏒🔥

Viltu sjá hörkuspennandi íshokkí í beinu útsendingu? Við ætlum að deila út 10 - 14 miðum á heimaleiki SR í úrslitakeppni Íslandsmótsins í mars!

Karlaflokkar í SR og SA hokkí eru mættir til leiks og baráttan um Íslandsmeistaratitilinn verður hrikalega hörð. Við viljum sjá sem flesta í stúkunni til að styðja sitt lið!

Svona tekur þú þátt:

Settu „like“ á þennan póst.

Taggaðu í athugasemd hvern þú ætlar að bjóða með þér.

Deildu póstinum svo fleiri fái að vita!

Við drögum út vinningshafa næsta föstudag 13. mars en næsti leikur fer fram í Laugardalum laugardaginn 14. mars kl. 17:45

Áfram hokkí! 🏒

HOKKÍ- OG LISTSKAUTADAGAR  - GRÆJAÐU ÞIG UPP! ⛸️🔥Nú er rétti tíminn til að uppfæra búnaðinn fyrir lokasprettinn eða tryg...
07/03/2026

HOKKÍ- OG LISTSKAUTADAGAR - GRÆJAÐU ÞIG UPP! ⛸️🔥

Nú er rétti tíminn til að uppfæra búnaðinn fyrir lokasprettinn eða tryggja sér græjur fyrir sumaræfingarnar. Við erum að rýma til fyrir sumarvörum og því er um að gera að nýta tækifærið.

💥 10% afsláttur af öllum standard skautum og vörum.
💥 25% afsláttur af völdum módolum og síðustu eintökum.
💥20-30% afsláttur af skauta og hokkí vörum

⚠️ Athugið: Sumar týpur og stærðir eru til í mjög takmörkuðu magni – fyrst(ur) kemur, fyrst(ur) fær!

📍 Kíktu til okkar í verslun okkar á Smiðjuvegi eða í netverslun okkar
https://pollyanna.is/

📅 Tilboðið gildir til 15. mars.

Næsta keppni nálgast? ⛸️✨Það er margt sem þarf að huga að þegar undirbúningur fyrir næstukeppni stendur yfir, en eitt af...
04/03/2026

Næsta keppni nálgast? ⛸️✨

Það er margt sem þarf að huga að þegar undirbúningur fyrir næstukeppni stendur yfir, en eitt af því skemmtilegasta (og mikilvægasta!) er valið á keppniskjólnum.

Kjóllinn er nefnilega ekki bara búningur – hann er hluti af listrænni túlkun þinni á ísnum. En hvernig velur maður „þann rétta“?

💎 Gæði umfram allt: Við mælum með vönduðum kjólum eins og frá Jerry’s Skating World. Þeir eru hannaðir fyrir hreyfingu, halda forminu og steinar og skart sitja fastir (sem er mikilvægt til að forðast refsistig!).
🎼 Tenging við tónlistina: Kjóllinn á að segja sömu sögu og tónlistin þín.
🤝 Við hjálpum þér: Ef þú ert óviss um snið, stærðir eða reglur, þá höfum við hjá Pollýönnu mikla þekkingu og reynslu og elskum að aðstoða skautastelpur við að finna draumakjólinn.

Ef við eigum ekki þinn draumakjól frá Jerry getum við sérpantað hann, en þú þarft að vera tímanleg í að panta eða fyrir 15. mars.

Kíktu á úrvalið hjá okkur eða lestu nýja bloggið okkar um allt sem þarf að hafa í huga við valið!

🔗 LINKUR Á NÝTT BLOGG HÉR: https://pollyanna.is/blogs/news/listin-ad-velja-retta-skautakjolinn
🔗 LINKUR Á SKAUTAKJÓLA HÉR: https://pollyanna.is/collections/skautakjolar

11/02/2026

Öskudagur á Íslandi = kalt veður og mikið labb 🎭

Kósýgallar eru hlýir og þægilegir – og krakkarnir elska þá.
Ekki bara búningur, heldur flík sem nýtist áfram 💛

👉 Tryggðu þér kósýgalla fyrir öskudaginn

https://pollyanna.is/collections/kosygallar?pb=0

Foreldrar barna í dansi 💃🩰Við erum komin með Dansklúbb Pollýönnu 💗Dansklúbburinn er fyrir foreldra barna í dansi og ball...
17/01/2026

Foreldrar barna í dansi 💃🩰

Við erum komin með Dansklúbb Pollýönnu 💗

Dansklúbburinn er fyrir foreldra barna í dansi og ballett sem vilja fá:
– klúbbafslátt af völdum dansvörum
– fyrstu fréttir af nýjum vörum
– betri yfirsýn og stuðning í innkaupum

Sem klúbbmeðlimur færðu 10% afslátt af dansvörum hjá okkur – bæði í netverslun og í versluninni.

👉 Skráning er einföld og ókeypis
👉 Smelltu á linkinn hér að neðan og skráðu í skráningarforminu sem kemur upp
👉 Skannaðu QR í búðinni

https://pollyanna.is/collections/ballet-fatnadur

Við viljum vera til staðar fyrir foreldra barna í dansi – og Dansklúbburinn er hluti af því 💗

Address

Smiðjuvegi 74, Gul Gata
Kópavogur
200

Opening Hours

Monday 11:00 - 17:00
Tuesday 11:00 - 17:00
Wednesday 11:00 - 17:00
Thursday 11:00 - 17:00
Friday 11:00 - 17:00
Saturday 11:00 - 15:00

Telephone

+3544193535

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Pollyanna.is posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Pollyanna.is:

Share