Ístak hf.

Ístak hf. Ístak er leiðandi fyrirtæki á íslenskum verktakamarkaði. Hjá fyrirtækinu starfa tæplega 500 manns.

Ístak hefur á undanförnum misserum lagt ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar með markvissri rafv...
20/05/2026

Ístak hefur á undanförnum misserum lagt ríka áherslu á að draga úr umhverfisáhrifum starfsemi sinnar með markvissri rafvæðingu í starfsemi sinni, þ. á m. við efnisvinnslu í Stapafellsnámu. Í námunni er nú unnið með 100% hreinni íslenskri raforku, sem er stórt skref í átt að sjálfbærari rekstri félagsins.

Umfangsmikil uppbygging hefur orðið á innviðum rafmagns á svæðinu og hefur m.a. verið tekin í notkun ný 1.250 Ampera heimtaug, settur hefur verið upp sérstakur heimtaugargámur fyrir hleðslustöð og dreifingu raforku innan svæðisins auk þess sem komið hefur verið fyrir 200 kW DC hraðhleðslustöð til hleðslu á vinnuvélum, svo sem hjólaskóflum og dráttarbílum.

Mölun steinefna með rafmagni eingöngu hófst í maí 2026 í samstarfi við Skútaberg en kónbrjótsamstæðan á svæðinu er að fullu rafdrifin auk þess sem rafknúin LiuGong hjólaskófla annast efnisflutninga að og frá brjótum. Eftir því sem best er vitað er þetta í fyrsta sinn sem efnisvinnsla af þessu tagi er framkvæmd með þessum hætti hér á landi, þ.e. að fullu rafknúin.

Með rafvæðingu efnisvinnslunnar er dregið umtalsvert úr umhverfisáhrifum af námvinnslu á svæðinu og má áætla að við vinnslu um 30.000 m³ af efni sparist um 75.000 lítrar af jarðefnaeldsneyti sem samsvari losun á um 201 tonni af CO2. Reynslan af rafdrifinni LiuGong 870 hjólaskóflu hefur reynst afar góð og hefur vélin staðið undir öllum væntingum í krefjandi aðstæðum við námuvinnsluna.

Fram undan eru jafnframt frekari áfangar í rafvæðingu starfseminnar en um mitt ár 2026 tekur Ístak í notkun 100% rafdrifinn dráttarbíl með malarvagni. Með tilkomu hans verður unnt að flytja efni úr námunni með innlendri, endurnýjanlegri orku og verður efnisvinnsla í námunni þá að fullu rafknúin, þ.e. allt frá vinnslu til afhendingar.

Miðvikudaginn 13. maí 2026 náðist stór áfangi í framkvæmdum Ístaks við Vaðölduver þegar holplötur sem mynda þak stærsta ...
18/05/2026

Miðvikudaginn 13. maí 2026 náðist stór áfangi í framkvæmdum Ístaks við Vaðölduver þegar holplötur sem mynda þak stærsta spennarýmis Safnstöðvarhússins voru hífðar á sinn stað. Með því er nú komið þak á allt húsið.

Safnstöðvarhúsið gegnir lykilhlutverki í uppbyggingu virkjunarinnar en þar verður meðal annars komið fyrir 200 tonna spennubreyti sem tekur við orku frá vindmyllunum og tengir hana áfram inn á háspennudreifikerfið.

Undanfarnar vikur hefur verið mikill kraftur í framkvæmdunum og hafa starfsmenn Ístaks og undirverktakar unnið þétt saman að því að ná þessum mikilvæga áfanga.

Af því tilefni var haldin grillveisla fyrir allt starfsfólk á verkstað þar sem fagnað var góðum árangri í sól og blíðu — og meira að segja vindurinn í Vaðöldu tók sér stutta pásu þann daginn.

Ístak hefur nú birt sína fyrstu sjálfbærniskýrslu á nýrri heimasíðu félagsins.  Við hvetjum ykkur öll til að kynna ykkur...
04/05/2026

Ístak hefur nú birt sína fyrstu sjálfbærniskýrslu á nýrri heimasíðu félagsins.

Við hvetjum ykkur öll til að kynna ykkur efni skýrslunnar sem kemur inn á fjölmörg svið félagsins og markmiða þess er varðar sjálfbærni. Um er að ræða árlega skýrslugjöf þar sem Ístak mun leggja áfram ríka áherslu á sjálfbærni í rekstri félagsins og verða í þeim efnum leiðandi á markaði verktaka hér á landi.

Lesa skýrslu hér - https://www.istak.is/sjalfbaernisskyrsla

Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktök...
08/04/2026

Þann 31. mars var undirritaður samningur milli Nýs Landspítala ohf. (NLSH) og Ístaks um innanhússfrágang og stýriverktöku í meðferðarkjarna Landspítalans, frá kjallara K2 upp á 4. hæð. Samningurinn nær jafnframt til heildarstjórnunar og samhæfingar framkvæmda á umræddum hæðum.

Um er að ræða einn umfangsmesta samning sem gerður hefur verið vegna framkvæmda á Hringbrautarsvæðinu til þessa, en heildarverðmæti hans nemur 15,9 milljörðum króna með virðisaukaskatti.

Ístak hefur áður komið að uppbyggingu meðferðarkjarnans og sá meðal annars um allan þakfrágang byggingarinnar.

Auk þess er fyrirtækið nú að ljúka við byggingu 4.500 fermetra endurhæfingarspítala á Grensási, samkvæmt samningi sem gerður var við NLSH árið 2024.

Samningurinn var undirritaður af Ölmu D. Möller, heilbrigðisráðherra, og Gísla H. Guðmundssyni, framkvæmdastjóra byggingasviðs Ístaks. Vottar fyrir hönd NLSH voru Árni Kristjánsson, staðarverkfræðingur, og Helgi Davíð Ingason, sviðsstjóri hönnunarsviðs.

Ístak hélt BIM dag Ístaks í annað sinn fimmtudaginn 5. mars. Viðburðurinn fór fram í Háteigi á Grand Hótel og var afar v...
11/03/2026

Ístak hélt BIM dag Ístaks í annað sinn fimmtudaginn 5. mars. Viðburðurinn fór fram í Háteigi á Grand Hótel og var afar vel sóttur en um 120 manns mættu til að fylgjast með dagskránni.

Markmið BIM dagsins er að miðla þekkingu og deila reynslu af notkun BIM og annarra stafrænna lausna í verkefnum innan Ístaks og víðar innan Per Aarsleff samstæðunnar.

Fulltrúar frá systurfélögum okkar, Per Aarsleff og Wicotec Kirkebjerg, héldu erindi um sína reynslu af stafrænum lausnum í framkvæmdum. Þá kynnti BIM-deild Ístaks einnig ný verkfæri sem eru að koma til notkunar, meðal annars áhættumatstól og VerkAI.

Viðburðurinn fór fram úr okkar væntingum og við þökkum öllum fyrir frábæra þátttöku 👏

Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína  og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í n...
19/01/2026

Ístak hefur tekið í notkun fyrstu 100% rafdrifnu stóru vinnuvélina sína og líklega stærstu rafknúnu vinnuvél sem er í notkun á Íslandi í dag.

Um er að ræða LiuGong 870 HE hjólaskóflu, sem mun sinna ámokstri í Stapafellsnámu og leysa af hólmi eldri dísilknúna Volvo hjólaskóflu.

Með þessari breytingu má gera ráð fyrir allt að 34.000 lítra eldsneytissparnaði á ári, sem er stórt skref í átt að minni kolefnisspori.

Helstu upplýsingar um vélina:
- Þyngd: ~27 tonn
- Skóflustærð: 5,7 m³
- Rafhlaða: 423 kWh (LFP)
- Hleðsluhraði: 300 kW
- Ending rafhlöðu: 6–8 klst

Með innleiðingu rafknúinna vinnuvéla styrkir Ístak vegferð sína í átt að ábyrgum, umhverfisvænum og sjálfbærum rekstri.

Við leitum að lærdómsfúsum einstaklingum sem hafa áhuga á að kynnast störfum tengdum þeirra námi í mannvirkjagerð. Nánar...
15/01/2026

Við leitum að lærdómsfúsum einstaklingum sem hafa áhuga á að kynnast störfum tengdum þeirra námi í mannvirkjagerð.

Nánari upplýsingar má finna í meðfylgjandi hlekk.

Ístak ræður árlega til sín sumarstarfsfólk í störf tækninema. Við leitum að lærdómsfúsum einstaklingum sem hafa áhuga á að kynnast störfum tengdum þeirra námi í mannvirkjagerð. Kynjahlutfall nema sem fá störf eru alltaf jöfn og tökum við á móti umsóknum frá öllum sem ...

23/12/2025
Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Sam...
22/12/2025

Ístak er eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem hafa gert rammasamning við Veitur, ásamt ÍAV og Stéttarfélaginu. Samningurinn var undirritaður 18. desember og byggir á útboði sem hófst í nóvember 2024 um viðhald og þjónustu á veitukerfum.

Útboðið fól í sér nýjar áherslur þar sem lögð var aukin áhersla á heildarlausnir til að auka hagkvæmni, skilvirkni og fyrirsjáanleika, auk þess að bæta þjónustu og gæði til viðskiptavina Veitna. Um er að ræða fyrsta rammasamningsútboð Veitna af þessu umfangi, þar sem viðhald lagna, heimlagnir og nýframkvæmdir eru sameinuð undir einum samningi. Samningurinn tekur til allt að 7,5 ára og inniheldur um 3.600 tilboðsliði.

Karl Andreassen, forstjóri Ístaks, segir að samningurinn endurspegli mikilvægan áfanga í samstarfi fyrirtækisins við Veitur:

„Ístak hefur ávallt lagt áherslu á faglega nálgun við úrlausn verkefna. Kröfur Veitna í rammasamningsútboðinu voru metnaðarfullar hvað snýr að gæðum, öryggismálum, umhverfismálum og faglegri hæfni. Það eru kröfur sem falla vel að stefnu Ístaks og því sérstakt gleðiefni fyrir fyrirtækið að vera eitt þeirra þriggja verktakafyrirtækja sem eru aðilar að samningnum. Við höfum átt í löngu og farsælu samstarfi við Veitur og fyrirrennara þeirra og mun aðild að rammasamningnum treysta það samstarf enn frekar í sessi.“

Ístak fagnaði 55 ára afmæli sínu í Hörpu 20. nóvember síðastliðinn og erum við virkilega glöð með hversu vel kvöldið tók...
01/12/2025

Ístak fagnaði 55 ára afmæli sínu í Hörpu 20. nóvember síðastliðinn og erum við virkilega glöð með hversu vel kvöldið tókst. Við frumsýndum tvær nýjar heimildamyndir sem sýna vinnu og verkefni síðustu fimm ára, annars vegar um Varnargarðana og Svartsengi og hins vegar fá Hótel Saga og Edda - hús íslenskra fræða að vera í aðalhlutverki.

Við tókum á móti fjölda gesta sem gerðu kvöldið eftirminnilegt.

Við erum afar þakklát fyrir frábæra mætingu, hlý orð og samstarfið í gegnum árin. Takk fyrir að fagna með okkur!

Hér hafið þið hlekk á heimildamyndirnar - https://www.youtube.com/playlist?list=PLO3iVea1Zod58jEQMqtupwirhyMfS-3pM

Address

Bugðufljót 19
Mosfellsbær
270

Opening Hours

Monday 08:15 - 16:00
Tuesday 08:15 - 16:00
Wednesday 08:15 - 16:00
Thursday 08:15 - 16:00
Friday 08:15 - 16:00

Telephone

5302700

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Ístak hf. posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Ístak hf.:

Share