Amma Sigga

Amma Sigga Allt sem Amma Sigga framleiðir er gert úr endurnýttum efnum. Flest efnin eru keypt í nytjamörku

Taska búinn til úr klukkustreng, rest af rúskinsjakka sem fyrri eigandi hafði klippt í sundur og svo belti sem ég fann á...
30/04/2023

Taska búinn til úr klukkustreng, rest af rúskinsjakka sem fyrri eigandi hafði klippt í sundur og svo belti sem ég fann á skiptimarkaði.

Taska búin til úr krosssaumsmynd sem atii lengi heima ofan í skúffu og gömlum gallabuxum.
23/04/2023

Taska búin til úr krosssaumsmynd sem atii lengi heima ofan í skúffu og gömlum gallabuxum.

“Veiddi” vel í Rauðakrossbúðunni í dag, flest af þessu er hálfklárað, nálarnar voru enn í a.m.k. tveimur verkanna. Borga...
14/11/2022

“Veiddi” vel í Rauðakrossbúðunni í dag, flest af þessu er hálfklárað, nálarnar voru enn í a.m.k. tveimur verkanna. Borgaði 1900 kr fyrir allt þetta. Þá er að finna þessu nýtt framhaldslíf.

Í vinnslu þessa dagana er að breyta karlmannajakkafötum í kjól        #
04/11/2022

Í vinnslu þessa dagana er að breyta karlmannajakkafötum í kjól #

Þessi taska er búin til úr slitnu hné á gallabuxum sem skapaði þennan fína ramma fyrir útsauminn. Er til sölu.          ...
29/10/2022

Þessi taska er búin til úr slitnu hné á gallabuxum sem skapaði þennan fína ramma fyrir útsauminn. Er til sölu.

Gamalt verður nýtt, tætt hné af gömlum H&M gallabuxum skapa ramma um útsaumuð umferðarmerki sem voru hluti af stærri úts...
25/10/2022

Gamalt verður nýtt, tætt hné af gömlum H&M gallabuxum skapa ramma um útsaumuð umferðarmerki sem voru hluti af stærri útsaumsmynd sem keypt var í Rauða krossinum á slikk.

Fyrsta endurnýtingarverkefnið á saumanámskeiðinu sem ég er á var að vinna með herraskyrtur. Ég fékk tvær heilar og eina ...
21/10/2022

Fyrsta endurnýtingarverkefnið á saumanámskeiðinu sem ég er á var að vinna með herraskyrtur. Ég fékk tvær heilar og eina ermalausa og ákvað að gera tilraun með að gjörnýta efnið. Ég byrjaði á að gera blússu með stuttum ermum. Svo gerði ég einfalt pils og síðan tösku. Restina skar ég í ræmur og batt saman og úr þeim garnhnykli er ég búin að gera eina körfu og stefni a að gera aðra úr restinni.

Gallabuxur og karlmannaskyrta orðin að síðu pilsi. Á laugardaginn verður Umhverfisdagur á Hallveigarstöðum og ég ætla að...
21/10/2022

Gallabuxur og karlmannaskyrta orðin að síðu pilsi.
Á laugardaginn verður Umhverfisdagur á Hallveigarstöðum og ég ætla að vera þar að endurvinna textíl með Saumahorn Siggu.

Endurnýtingin mín, allt efni sem ég fékk að gjöf eða keypti í nytjamörkuðum. Amma mágkonu minnar gaf mér mikið af efnum....
16/07/2022

Endurnýtingin mín, allt efni sem ég fékk að gjöf eða keypti í nytjamörkuðum. Amma mágkonu minnar gaf mér mikið af efnum. Hún féll frá í sumar og mér fannst því tilvalið að útbúa þennan púða í afmælisgjöf handa mágkonu minni, miðjustykkið er t.d. úr slæðu sem amman átti og á einum stað er brot úr blómakörfu sem hún hafði verið að gera og slæddist með efnunum sem ég fékk.

Bak púðans er sniðið úr gardýnuvæng sem ég fann á nytjamarkað, mátulega upplitað með sál.

Mikið frelsi falið í því að “gefa sér leyfi” til að láta efnin stjórna för og þora að sleppa tökum af fyrirfram ákvörðuðum boðum og bönnum um hvernig hlutir “eigi” að vera.

Amma Sigga fékk rausnarlega gjöf frá eldri konu á dögunum. Kassi með blúndum og fullur svartur poki með efnum. Dásamlega...
14/01/2021

Amma Sigga fékk rausnarlega gjöf frá eldri konu á dögunum. Kassi með blúndum og fullur svartur poki með efnum. Dásamlega fallegt allt og hagur ömmu Siggu til sköpunar nýrra verka úr gömlu efni hefur heldur betur vænkast. Í blúndukassanum reyndust vera um 130 mismunandi blúndur og borðar allt frá smá bútum upp í marga metra. Takk kæra amma Hildar.

Gömul innrömmuð krosssaumsmynd og gamall kjóll urðu hér að afmælisgjöf fyrir góða vinkonu sem er dansfræðingur. Taskan e...
29/11/2020

Gömul innrömmuð krosssaumsmynd og gamall kjóll urðu hér að afmælisgjöf fyrir góða vinkonu sem er dansfræðingur. Taskan er fóðruð með efni sem mér var gefið og hafði legið ónotað inn í skáp í áravís.
Þetta var gaman að gera og enn skemmtilegra að gefa.

Til á lager núna.
27/09/2020

Til á lager núna.

Address

Reykjavík

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Amma Sigga posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Amma Sigga:

Share