13/07/2026
Spennandi tímar framundan hjá Selena Lífstykkjabúðin . Við þökkum fyrrum eigendum Lífstykkjabúðarinnar kærlega fyrir frábært samstarf við sameiningu og hlökkum til að halda áfram að auka vöruframboð fyrir núverandi og nýjum viðskiptavinum okkar.
Til að byrja með verður sameinuð starfsemi rekin í húsnæði Selena í bláu húsunum við Faxafen, þar sem viðskiptavinir beggja verslana verða boðnir hjartanlega velkomnir. Vörur verslananna verða einnig aðgengilegar á www.selena.is og www.lifstykkjabudin.is. Jafnframt er hafinn undirbúningur að flutningi í stærra og glæsilegra húsnæði sem mun skapa enn betri aðstöðu fyrir bæði viðskiptavini og starfsfólk. Nánari upplýsingar um nýja húsnæðið og opnun þess verða kynntar síðar.
Selena og Lífstykkjabúðin munu sameinast undir heitinu Selena Lífstykkjabúðin.