Systur og Makar Reykjavík

Systur og Makar Reykjavík Falleg og notaleg verslun staðsett í Síðumúla 21 með íslenska hönnun og framleiðslu í bland við vandlega valin merki. Kíktu endilega í heimsókn.

Fatnaður, skart, gjafavara, töskur og aukahlutir. instagram: Systur og Makar er falleg verslun í Síðumúla 21 með fjölbreytt úrval af fatnaði, skarti, töskum, snyrtivöru og gjafavöru. Katla, eigandi Systur&Makar, stofnaði fatamerkið Volcano Design, sem er höfuð vörulína verslunarinnar, síðsumars 2008 en fatnaðurinn er framleiddur hér innanlands á eigin saumastofu fyrirtækisins sem nú

má finna í sama húsnæði og verslunina sjálfa. Nóg er af bílastæðum beint fyrir utan verslunina en einnig er hægt að panta vörur á netversluninni www.systurogmakar.is og fá sendar beint heim. Hægt er að fylgjast með fréttum af nýjungum og starfi rekstursins á instagram sem og hér á facebook síðunni: SysturogMakar Reykjavík. Verslun, saumastofa og skrifstofa

Síðumúli 21, 108 Reykjavik
Sími 588 0100
[email protected]
Opnunartímar
Alla virka daga 10:00 – 17:00
Laugardaga 11:00 -16:00

11/06/2026

Við vorum að fá sendingu af tátiljunum vinsælu aftur!!
150 pör af beige og 300 pör af svörtu nú loks til á ný!
pakki með 3 pörum í sama lit á 1900..-

systurogmakar.is

Myndataka og mátun á story í dag 12. júní- nýjar vörur og eldri.Kemur allt á netið í dag smátt og smátt ❤️systurogmakar....
11/06/2026

Myndataka og mátun á story í dag 12. júní- nýjar vörur og eldri.
Kemur allt á netið í dag smátt og smátt ❤️

systurogmakar.is

10/06/2026

Brilliant í ferðalagið!
Joy buxur 16.900.- 7 stærðir og nokkrir litir
Anna toppur bambus 9500.-
Kögurjakki 54.900.-

systurogmakar.is
Síðumúla 21

09/06/2026

Heilagur kakóbolli með “kicki”! 🌶️

Þessi er næs!
1 bolli vatn, hitað að suðu og aðeins leyft að kólna aftur
1 msk Dalileó kakó
1/2 msk chilli kakó
3-4 dropar stevia- french vanilla eða það sem hentar
hrært og notið á uppáhaldsstaðnum sem hjá mér er að þessu sinni í gróðurhúsinu 🌱

/gjöf .is 🤎

09/06/2026

Langar þig að vera hluti af Systur&Makar í sumar?

Ef þú hefur áhuga á fallegri hönnun, tísku, handverki og framúrskarandi þjónustu og vilt vera hluti af Systur&Makar samfélaginu, lestu þá áfram.

Við leitum að frábærum einstaklingi til að slást í hópinn okkar í fullt starf í sumar – með möguleika á áframhaldandi starfi fyrir réttan aðila.

Hjá Systur&Makar skiptir upplifun viðskiptavinarins öllu máli. Við leitum því að einstaklingi sem elskar að vinna með fólki, hefur gott auga fyrir smáatriðum og nýtur þess að skapa hlýlegt og jákvætt andrúmsloft.

Þú ert líklega sú manneskja sem við leitum að ef þú:

🌸 Ert 20 ára eða eldri
🌸 Hefur ríka þjónustulund og bros á vör
🌸 Hefur áhuga á sölu og samskiptum við fólk
🌸 Ert drífandi, sjálfstæð/ur og sýnir frumkvæði
🌸 Hefur góða tölvukunnáttu
🌸 Ert smart, skipulögð/ur og ábyrg/ur
🌸 Tekur þátt af heilum hug og sérð hvað þarf að gera

Helstu verkefni eru sala og þjónusta við viðskiptavini, uppsetning og frágangur vara, afgreiðsla og almenn þátttaka í daglegum rekstri verslunarinnar.

Vinnutími fylgir opnunartíma verslunnar:
Mánudaga–föstudaga kl. 10–17
Laugardaga kl. 11–16

Ef þú hefur áhuga á fallegri hönnun, góðri þjónustu og lifandi vinnustað þar sem enginn dagur er eins, þá viljum við gjarnan heyra frá þér.

Sendu okkur umsókn, stutta kynningu á þér, ferilskrá og meðmæli á [email protected].

Við hlökkum til að kynnast þér 💛

Júní listi: Ár Dalíunnar!Ég ákvað að gera íslenskan playlista í þetta skiptið sem heitir “Þegar dagarnir lengjast” og lý...
06/06/2026

Júní listi: Ár Dalíunnar!
Ég ákvað að gera íslenskan playlista í þetta skiptið sem heitir “Þegar dagarnir lengjast” og lýsingin á honum er svona:

Fíflar við gangbrautir, fellihýsið sótt í geymsluna og undirbúið, sólin hikar en er samt spennt að mæta, blautir hoppukastalar, nýjasti sumardrykkurinn á auglýsingaskiltum, orlofið greitt út, útskriftarathafnir úr leikskólum, pallasmíði, grilllykt og fimmtudagsdrykkur með vinkonum.

​Ég sé bara fyrir mér lengri sumarkvöld, putta í moldinni og að undirbúningur fyrir sumarið sé í fullum gangi. Þessi listi er hugsaður fyrir labbitúrinn með pods í eyrum eða fyrir drykk á pallinum með vinkonu eða jafnvel í bílnum á leiðinni út úr bænum.

Rólegur en samt næs listi fyrir júnímánuð sem telst vissulega líka sem sumar og nú hættum við bara að “bíða” eftir því og byrjum að njóta, hvort sem það er í hreinsandi rigningu eða sólaryl!

Lifum í núinu: lifum júní í júní 🌱

https://open.spotify.com/playlist/3405QMGX98twPZdFaQc3fg?si=U6KnBzBFRVef1V8u5MVm-Q&pi=mYI1NCXeRNqQv

05/06/2026

Ár dalíunnar Júní – Núið skiptir máli🪷
Júní er hafinn með tilheyrandi vökvun, óvissu sumri sem er enn aðeins að ákveða sig og plönum. Svo mörgum plönum. Við leggjum oft mesta áherslu á hvernig við ætlum að nýta sumarið sem best, gera allt og missa ekki af neinu!
Engin pressa þar, er það?
Í Ári dalíunnar er júní tileinkaður núvitund. Núið skiptir máli því lífið er ekki biðstofa fyrir framtíðina.
Frá því ég sendi ykkur póst í maí og sagði frá væntanlegri búðarstækkun hefur ýmislegt gerst – þó ekki endilega samkvæmt nákvæmu breytingaplani. Ég hélt vissulega að framkvæmdirnar yrðu komnar lengra, en stundum þurfa mörg púsl að smella saman áður en hlutirnir fara af stað.
Þess í stað hef ég einbeitt mér að öðru; myndatökum, sumarlúkkinu og auðvitað blómunum. Við hjónin útbjuggum líka drullukofa fyrir gormana og tímabundið blómaskýli á svölunum þar sem ég fæ að leika mér.
Ég hef því neyðst til að hægja aðeins á mér og sætta mig við að allt gerist ekki alltaf strax. Dagurinn í dag skiptir líka máli, ekki bara þegar hitt eða þetta verður loksins tilbúið.
Í maí skeit ég meira að segja aðeins upp á bak með Dalíuna. Enginn playlisti, litlu Dalíudóti deilt og engin vikuleg verkefni. Kannski var Dalíumarkiðið sett aðeins of hátt í byrjun samhliða öllu hinu sem kallast lífið.
En ég var í núinu.
Ég hef hlustað á „A Court of Thorns and Roses“ á meðan ég pota í moldina, farið á nærandi hittinga með vinkonum og fjölskyldu, fengið ömmu í hádegismat í gróðurskálann og passað upp á dalíurnar mínar sem dafna vel.
Það er nefnilega þannig að það blómstrar þar sem maður vökvar!
Þess vegna langar mig að hvetja þig í júní til að hætta að bíða. Ekki bíða eftir betra veðri, breyttum aðstæðum eða rétta augnablikinu. Hittu vinkonuna, farðu á deitið, fáðu þér dressið, njóttu matar og drykkjar, haltu boðið, farðu í ferðina og lifðu júní í júní.

Það er ekki bara “nóg” heldur geggjað gott markmið!

03/06/2026

Mirja trefill 15.900.-
Kim peysa 18.900.-
svo fallegar vörur frá sænska “slow fashion” merkinu Movesgood

systurogmakar.is
Síðumúla 21

02/06/2026

Aðeins um blessað blómaskýlið sem er jú vissulega bara tímabundin en frábær lausn samt sem áður. Þegar maður fær svona skemmtilegt hobbý sem byrjar smátt og krúttlega í litlum fræpökkum og tekur svo hratt yfir allt.. þá þarf að skýla þessum elskum á meðan sumarið færist rólega yfir og þær kíkja út í súrefnið!

Þetta er úr holplasti og timbri með mublum og hillum og dóti sem við áttum og nýttum. Enn og aftur kemur söfnunaráráttan sterk inn 😉 Holplastið keyptum við hjá Tómasi Ponzi en timbrið versluðum við í timburverslun eða áttum og nýttum.
Fyrir þá sem eru ekki í jafn miklum framkvæmdum þá er gróðurtjaldið úr Ikea líka frábær lausn.. það bara átti ekki séns í magnið hjá stórtæku mér🥴

Fyrir utan fegurðina sem blómunum fylgir þá hefur þetta veitt mér þvílíka sálarró og jarðtengingu. Með þeim næ ég að slökkva aðeins á kollinum, hlusta á hljóðbók, podcast eða ekkert og stinga puttunum í moldina. Andardrátturinn verður hægari og dýpri og ég horfi á þetta sem hálfgerða hugleiðslu. Plönturnar launa mér svo verkið með blómum og mat sem og svo mikilli gleði! Allir með pu***na í moldina, mæli með 🌱

Address

Síðumúli 21
Reykjavík
108

Opening Hours

Monday 10:00 - 17:00
Tuesday 10:00 - 17:00
Wednesday 10:00 - 17:00
Thursday 10:00 - 17:00
Friday 10:00 - 17:00
Saturday 11:00 - 16:00

Telephone

+3545880100

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Systur og Makar Reykjavík posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Systur og Makar Reykjavík:

Share