18/12/2025
Kæru vinir, Í sumar varð því miður bruni hjá okkur sem breytti áformum okkar á augabragði. Við erum enn í framkvæmdum í kjölfarið og náum því miður ekki að opna aftur fyrir hátíðarnar í ár. Við munum opna aftur í febrúar 2026 á sama stað í endurbættu húsnæði. Á þessum óvenjulegu tímum höfum við fundið fyrir hlýhug og stuðningi sem skiptir öllu máli. Fyrir það erum við afar þakklát. Okkur langar að þakka sérstaklega Efnalauginni Björg við Mjódd og frábæru starfsfólki þeirra. Þar er opið og tekið vel á móti ykkur sem þurfið á þjónustu að halda. Takk fyrir þolinmæðina. Við hlökkum til að hitta ykkur aftur.
Óskum ykkur öllum gleðilega hátíð og farsældar á nýju ári 🥳🎉