Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar

Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar Verslun með klassískan herrafatnað og gjafavöru.

Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar var stofnuð í Reykjavík fyrir jólin 1996 af Kormáki Geirharðssyni trymbli og Skildi Sigurjónssyni matreiðslumanni. Árið 2006 opnaði Herrafataverzlunin í Kjörgarði, einni elstu verslanamiðstöð Reykjavíkur, eftir að hafa legið í dvala um nokkura ára skeið. Vöruúrvalið tekur sérstaklega mið af breskri klæðahefð, með áherslu á þykk og góð ullarefni og fatnað sem hen

tar vel til útivistar og frístunda á norðlægum slóðum. Aðal verslunarinnar hefur ætíð verið alþýðlegt skap eigenda hennar og starfsmanna og sú trú að enginn sé svo illa uppdreginn að ekki megi koma honum til bjargar.

K&S BindiVið vorum að taka upp splunkunýja sendingu af silki og ullar bindum frá framleiðandanum okkar á Spáni og eru þa...
02/06/2026

K&S Bindi

Við vorum að taka upp splunkunýja sendingu af silki og ullar bindum frá framleiðandanum okkar á Spáni og eru þau öll ótrúlega flott. Fengum bæði áfyllingar á fyrri stílum og nýja áður óséða stíla.

Hér á myndunum er aðeins lítið brot af úrvalinu, og koma svo bindin öll inná heimasíðuna okkar á næstu dögum.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

ASTORFLEX herraskórAstorflex er eitt af skómerkjum búðarinnar og hafa skórnir verið geysivinsælir síðan þeir komu fyrst ...
27/05/2026

ASTORFLEX herraskór

Astorflex er eitt af skómerkjum búðarinnar og hafa skórnir verið geysivinsælir síðan þeir komu fyrst til okkar haustið 2022. Í gegnum árin hefur bæst töluvert í úrvalið og í dag erum við með yfir 6 mismunandi týpur og hver til í mismunandi litum. Einnig eigum við til úrval af dömuskóm frá Astorflex.

Astorflex er ítalskt merki, stofnað árið 1820 og hefur verið í sömu fjölskyldu og verksmiðjum frá stofnun þannig hafa þau náð að viðhalda sömu góðu gæðum í gegnum árin.

Skórnir eru allir handgerðir í ítalíu úr náttúrulegu efni, flestir úr rúskinni eða leðri, með hrágúmmí sóla sem eru einstaklega gripgóðir.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

JAKKAFÖT 2026Nú er hver útskriftin á eftir annarri og fer hver að vera síðastur að næla sér í útskriftar dressið! Hér á ...
25/05/2026

JAKKAFÖT 2026

Nú er hver útskriftin á eftir annarri og fer hver að vera síðastur að næla sér í útskriftar dressið! Hér á myndunum eru strákarnir úr búðinni og Kormákur & Skjöldur klæddir í hluta af nýjustu jakkafötunum.

Við mælum með að koma tímanlega að máta svo hægt sé að mæla og breyta ef þörf er á, og minnum á að útskriftarnemar fá 10% afslátt af útskriftarfötum.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

SUMAR JAKKAFÖTIN // Sikiley & BirminghamÞessir tveir jakkafatastílar, sem bera nöfnin Sikiley og Birmingham voru að dett...
20/05/2026

SUMAR JAKKAFÖTIN // Sikiley & Birmingham

Þessir tveir jakkafatastílar, sem bera nöfnin Sikiley og Birmingham voru að detta í hús hjá okkur til viðbótar við sumarlínuna og er verslunarstjórinn Marteinn, og samfélagsmiðlastjórinn Þorlákur, búnir að stíla bæði jakkafötin og stöku jakkana.

Sturluð föt úr 55% ull og 45% hör, fullkomin fyrir sumarið.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

!! GJAFALEIKUR !!Við höfum ákveðið að skella í gjafaleik í tilefni sumars og ætlum að gefa einum heppnum fylgjenda splun...
18/05/2026

!! GJAFALEIKUR !!

Við höfum ákveðið að skella í gjafaleik í tilefni sumars og ætlum að gefa einum heppnum fylgjenda splunkunýtt jakkafatasett!

Það sem þú þarft að gera er:
1. Fylgja okkur á Instagram
2. Læka þennan póst
3. Tagga vin í comments (Það má commenta eins oft og þú vilt og eykur það vinningslíkur)

Dregið verður út föstudaginn þann 5. júní!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

Emma DömujakkiStöðugt streymir inn í búðina nýjum dömuvörum og komu þessir virkilega fallegu jakkar frá Walker Slater í ...
15/05/2026

Emma Dömujakki

Stöðugt streymir inn í búðina nýjum dömuvörum og komu þessir virkilega fallegu jakkar frá Walker Slater í síðustu sendingu. Þetta er jakkinn Emma og kemur hann bæði í íslenska tweed efninu Gretti og skosku tweed efni sem nefnist Plum.

Hér sjáiði okkar allra bestu Hallgerði að skarta sínu fínasta í jökkunum tveimur og parar hún þá við aðrar fallegar vörur úr búðinni eins og sixpensara í stíl við Gretti, Andrew buxurnar frá Hansen og rauða Paraboot skó.

Hlökkum til að sjá ykkur!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

Uppstigningardagur 2026Á morgun, þann 14. maí á uppstigningardag, fögnum við með því að hafa búðina opna og taka ótrúleg...
13/05/2026

Uppstigningardagur 2026

Á morgun, þann 14. maí á uppstigningardag, fögnum við með því að hafa búðina opna og taka ótrúlega vel á móti ykkur!

Búðin verður opin frá 12:00 til 18:00, hlökkum til að sjá ykkur!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

Uppstigningardagur 2026Á morgun, þann 14. maí á uppstigningardag, fögnum við með því að hafa búðina opna og taka extra v...
13/05/2026

Uppstigningardagur 2026

Á morgun, þann 14. maí á uppstigningardag, fögnum við með því að hafa búðina opna og taka extra vel á móti ykkur!

Búðin verður opin frá 12:00 - 18:00, hlökkum til að sjá ykkur!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

Paraboot DömuskórParaboot er franskur skó framleiðandi, stofnaður árið 1927 og hafa í tugi ára verið einn vinsælasti skó...
12/05/2026

Paraboot Dömuskór

Paraboot er franskur skó framleiðandi, stofnaður árið 1927 og hafa í tugi ára verið einn vinsælasti skó framleiðandi heims á hágæða skóm.

Við í Kormáki & Skildi höfum núna verið með Paraboot til sölu hjá
okkur í nokkur ár og verða þeir aldrei til vonbrigða.

Við eigum þrjár dömu týpur frá Paraboot, eina rauða, eina svarta og eina úr kúa hárum, allir jafn einstakir.

Ásamt dömuskónum eigum við nokkrar týpur af herraskóm frá Paraboot.

Hlökkum til að sjá ykkur í búðinni!

Kormákur & Skjöldur // Laugavegi 29

Address

Laugavegur 29
Reykjavík
101

Opening Hours

Monday 11:00 - 18:00
Tuesday 11:00 - 18:00
Wednesday 11:00 - 18:00
Thursday 11:00 - 18:00
Friday 11:00 - 18:00
Saturday 11:00 - 18:00
Sunday 13:00 - 17:00

Telephone

+3545111817

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Herrafataverzlun Kormáks & Skjaldar:

Shortcuts

Share