15/04/2026
Nú ætlum við að fagna vorinu! Thomsen Reykjavík í samstarfi við Johnnie Walker og Brennivín býður þér í sannkallaða kokteilaveislu að tilefni Reykjavík Cocktail Week.
Gleðin hefst í verslun okkar á Hafnartorgi klukkan 16:00 þar sem DJ Benni B-Ruff heldur uppi fjörinu og fyrsta flokks barþjónar sjá til þess að allir fái eitthvað gott að drekka.
Klukkan 17:00 mun svo hersingin dansa yfir á Gilligogg í Austurstræti þar sem fjörinu verður haldið áfram.
Góðir kokteilar, skemmtileg tónlist, falleg föt og vor í lofti.
Hlökkum til að sjá þig!
Event: https://fb.me/e/dczWfA1Rq