Jazz Tískuverslun með flottar herra og dömuvörur á frábæru verði.Opið 10-12 og 14-18 alla daga Laugardaga 11-14

20/01/2026

Kæru ÍBV-arar 🖤🤍

Næsta laugardag fer fram leikur meistaraflokks kvenna gegn Val. Það er engu logið þegar við segjum að þetta sé stærsti leikur tímabilsins til þessa. Stelpurnar okkar hafa staðið sig ótrúlega vel í vetur og deila toppsætinu með Val þessa stundina. Við biðlum til allra að mæta í húsið á laugardaginn og hvetja stelpurnar okkar til sigurs.

Ungir leikmenn ÍBV hafa vakið verðskuldaða athygli á tímabilinu fyrir frábærar frammistöður. Ein þeirra er Ásdís Halla Hjarðar sem hefur sinnt lykilhlutverki þá sérstaklega í varnarleik liðsins. Við skulum kynnast henni aðeins betur.

Næstu daga munum svo við birta kynningu á fleiri ungum leikmönnum.

🏐 Þú hefur vakið mikla athygli í vetur fyrir varnarleikinn – hvernig myndirðu sjálf lýsa þínu hlutverki í liðinu?

Ég myndi segja að hlutverkið mitt í liðinu sé fyrst og fremst að vera sterk varnarlega og leiðandi þar. Ég legg mikla áherslu á að tala mikið, stýra varnarlínunni og halda stemningunni uppi.

🏐 Hvað finnst þér skipta mestu máli í góðum varnarleik?

Mér finnst talandi skipta langmestu máli í góðum varnarleik. Þegar við erum stöðugt að tala saman og hjálpa hver annarri þá gengur oftast mun betur. Svo finnst mér líka skipta miklu máli að vera skynsöm, að lesa leikinn rétt og taka réttar ákvarðanir.

🏐 Hvernig undirbýrðu þig fyrir andstæðinga – ertu mikið að greina leikmenn eða treystirðu meira á tilfinningu inni á vellinum?

Ég kíki auðvitað aðeins á gamla leiki og reyni að greina þá leikmenn sem standa mest upp úr hjá andstæðingunum. En ég geri samt ekki of mikið úr því, mér finnst líka mjög mikilvægt að treysta á tilfinninguna inni á vellinum og lesa leikinn þegar hann er í gangi.

🏐 Er eitthvað í þínum leik sem þú hefur sérstaklega bætt hjá þér í vetur?

Mér finnst ég hafa bætt mig sérstaklega í því að tala meira og þora að vera leiðandi inni á vellinum, ég er duglegri að gefa af mér, bæði í vörninni og líka upp í stúku. Einnig hef ég líka lært mikið í vetur, bæði af reynslu og af stelpunum í liðinu.

🏐 Hversu gott er að hafa markvörð eins og Amalie, vinnið þið mikið saman?

Það var geggjað að fá hana í liðið, bæði sem leikmann og leiðtoga. Hún hjálpar mér rosalega mikið í vörninni, talar mikið við mig og segir mér til inni á vellinum.

🏐 Áttu þér einhverja fyrirmynd í handbolta? Bannað að segja mömmu 😀

Já, fyrirmyndin mín í handbolta er Steinunn Björnsdóttir. Hún er ekki bara ótrúlega góð í handbolta, heldur líka mikill leiðtogi inni á vellinum og mikil fyrirmynd utan hans.

🏐 Næsti leikur er afar mikilvægur - Er öðruvísi undirbúningur hjá þér persónulega fyrir leiki þar sem mikið er undir?

Nei, það er í raun ekkert öðruvísi hjá mér. Ég reyni bara að halda mig við sömu rútínu, æfa vel vikuna fyrir og vera í góðum undirbúningi.

🏐 Hvað gefur þér mesta ánægju í handbolta?

Félagsskapurinn gefur mér klárlega mesta ánægju í handbolta, bæði inni á vellinum og utan hans. Að vera hluti af svona góðum hóp skiptir rosalega miklu máli. Svo finnst mér líka auðvitað bara mjög gaman í handbolta og maður kvartar ekkert þegar hlutirnir eru að ganga vel.

🏐 Nú hefur þú fengið gríðarlega mikla ábyrgð þrátt fyrir ungan aldur. Finnst þér þú vera að vaxa sem leikmaður með þessari ábyrgð?

Já, þessi ábyrgð lætur mann klárlega vaxa með hverjum leik. Maður lærir mikið af því að fá traust og taka meiri ábyrgð inni á vellinum. En á sama tíma finnst mér alltaf vera hægt að bæta sig.

🫵 Ertu með einhver skilaboð til eyjamanna fyrir leikinn um helgina? 🫵

Ég vil bara hvetja ykkur til að mæta og styðja okkur. Stemningin í húsinu skiptir rosalega miklu máli og hjálpar okkur helling inni á vellinum. Þetta verður geggjaður leikur hjá liðum í toppsætinu og við lofum að gefa allt í þetta. 🖤🤍

ÁFRAM ÍBV 🤍🖤

15/01/2026

Þetta eru leiktímar Íslands á EM 🇮🇸

23/05/2018

Þessi æðislega, létta úlpa frá BRANDTEX ásamt fleiru sumarlegu og fallegu er væntanlegt í næstu viku. Ef þú gætir hugsað þér að klæðast þessari í sumar smelltu þá á like! 😍☺️

25/06/2012

Kæru vinir þá er búið að loka versluninni Jazz ,sýðasti dagur var á laugardag.því er nú ver.Án ykkar hefði þetta ekki verið svona gaman .Við þökkum öllum viðskiptavinum okkar fyrir frábær ár.Enn og aftur takk,takk, takk, Sjáumst hress.Margrét Áslaug Bjarnhéðinsdóttir .

19/06/2012

Þá eru bara 4 dagar í lokun á jazz.SKRÎTIÐ. komið og notið tækifærið að versla lokum á laugardag fullt af nýjum vörum ótrúlegt en satt.koma soo.

10/06/2012

Jæja þá stittist í að Jazz hætti bara nokkrir dagar eftir lokum 25 Júní notið nú tækifærið og verslið meðan færi gefst.vorum að taka upp nýjar vörur alla sýðustu viku allt á afslætti.vonumst til að sjá ykkur svona sýðustu dagana.Eigum eftir að sakna ykkar.

06/06/2012

Við í Jazz erum búnar að vera að taka upp nýjar vörur á hverjum degi sem eru allar á 30% afslætti notið tækifærið og skoðið. Verið velkomin.

02/06/2012

Búið að vera bilað að gera hjá okkur í Jazz þessa viku tökum upp nýjar vörur daglega bara gaman..ótrúleg verð komið og skoðið og gerið flott kaup,koma soo.

29/05/2012

ATH,,,,Verslunin Lokar.,,,
Nú er verslunin að fara að Loka þann 20 júlí, þannig að allt á að seljast.Afsláttur og tilboð á öllum fatnaði. Full búð af nýjum vörum.

23/05/2012

Vorum að taka upp nýjar vörur og höldum áfram með 30% Afslátt af öllum nýjum vörum. " JÁ ÖLLUM " Einnig eru tilboð á nokkrum vörum. Komið og gerið frábær kaup.

Address

Bárustígur 1
Vestmannaeyjar
900

Telephone

+3544813203

Website

Alerts

Be the first to know and let us send you an email when Jazz posts news and promotions. Your email address will not be used for any other purpose, and you can unsubscribe at any time.

Contact The Business

Send a message to Jazz:

Share